03. september 2010

Forvarnarfræðsla fyrir skólana.

Forvarnarfræðsla Lifandi Ráðgjafar er nú í gangi í nokkrum skólum í Reykjavík og Hafnarfirði. Þetta er fjórða árið sem LR býður skólum upp á forvarnarfræðslu fyrir 8. og 9. bekk. Samtímis er foreldrum boðið upp á fræðslu og umræður um vímuefni og þeir hvattir til að ræða við unglingana sína um þessi mál.

Mikill munur er á þeirri fræðslu sem hefur verið í gangi undanfarin ár og þeirri fræðslu sem veitt er hjá LR. Forvarnarverkefnin sem LR hefur þróað í samvinnu við erlenda sérfræðinga uppfylla þær kröfur sem almennt eru gerðar í dag til slíkrar fræðslu. Þar er horfið frá hræðsluáróðri sem allar rannsóknir sýna fram á að gera ekkert gagn til þeirrar aðferðar að fræða og upplýsa unglingana. Samhliða fræðslunni eru unglingarnir látnir vinna verkefni sem skerpa athyglina og setja fræðsluna í þekkingarlegt samhengi. Þá er þess gætt að fræðslan sé kennslufræðilega rétt sett fram og að verkefni svari til þroska hvers árgangs fyrir sig.

Rannsóknir sýna að best er að bjóða upp á samfellda forvarnarfræðslu frá upphafi skólagöngu og hefur öll þróunarvinna LR tekið mið af því líkani.
 
15. júlí 2010

Hvar er fjölskyldumeðferðin?

Meðferð fyrir einstaklinga og fjölskyldur í kreppu eru ekki áberandi í umræðunni í dag, þrátt fyrir mikla þörf. Sumarlokanir opinberra stofnana eða samdráttur í þjónustu vegna sumarleyfa geta sett strik í líf einstaklinga og fjölskyldna það er að segja, leitt til skilnaðar eða sundrungar innan fjölskyldna sem kannski hefði mátt koma í veg fyrir með viðeigandi inngripi fagaðila.

 
Lesa meira...
25. júní 2010

Lifandi Ráðgjöf á Facebook

Facebook síða Lifandi Ráðgjafar er komin í loftið og viðbrögðin hafa verið framar vonum. Markmið síðunnar er að kynna metnaðarfulla starfsemi Lifandi Ráðgjafar fyrir einstaklinga, fjölskyldur, fyrirtæki og stofnanir varðandi vímuefnamál.
 
Lesa meira...
18. júní 2010

Útskrift

Smelltu

Miðvikudaginn 16. júní sl. útskrifuðust sjö stoltir nemendur úr námskeiðinu „Virkni og velgengni“ sem er samstarfsverkefni Virkniátaks Reykjavíkurborgar og Lifandi Ráðgjafar ehf.

 
Lesa meira...
29. apríl 2010

Forvarnarfræðsla fyrir skólana.

Forvarnarfræðsla Lifandi Ráðgjafar er nú í gangi í nokkrum skólum í Reykjavík og Hafnarfirði. Þetta er þriðja árið sem LR býður skólum upp á forvarnarfræðslu fyrir 8. og 9. bekk. Samtímis er foreldrum boðið upp á fræðslu og umræður um vímuefni og þeir hvattir til að ræða við unglingana sína um þessi mál.
 
Lesa meira...
22.03.2010

Námskeið í Endurmenntun HÍ
Fíknisjúkdómar starfsmanna - viðbrögð og vinnureglur -

Ætlað stjórnendum og millistjórnendum fyrirtækja og stofnanna. Námskeiðið nýtist einnig náms- og starfsráðgjöfum auk forvarnarfulltrúum í grunn- og framhaldsskólum. Námskeiðið er byggt upp á þremur þriggja klukkustunda fyrirlestrum auk vinnustofu í lok námskeiðs til að fylgja eftir verkefnum og reynslu. Lögð er áhersla á hagnýtar upplýsingar, aðferðir og umræður. Takmarkaður sætafjöldi.

Skráningarfrestur er til 29. mars.

Kennsla / umsjón: Jóna Margrét Ólafsdóttir, félagsráðgjafi MA

Hvenær: Fim. 8., þri. 13. og fim. 15. apríl kl. 8:30 - 11:30 auk eftirfylgni fim. 29. apríl. kl. 8:30 - 11:30 (4x) Verð: 34.500 kr.

Þeir stjórnendur sem eru vel upplýstir um fíknisjúkdóma eru betur undir það búnir að íhlutast í málefni starfsmanns sem hugsanlega er í neyslu. Íhlutun er sú nálgun að unnið er með sjáanleg einkenni í hegðun, framkomu og frammistöðu einstaklingsins. Á námskeiðinu er farið í viðtalstækni sem eflir stjórnendur í að byggja upp trausta og góða samvinnu. Fjallað er um starfamannahandbók fyrirtækja og stofnanna og vinnureglur varðandi fíknisjúkdóma.

Markmið námskeiðsins er að efla þekkingu stjórnenda og millistjórnenda á fíknisjúkdómum, færa þeim grunnþekkingu á helstu einkennum vímuefnaneyslu og kynna leiðir til úrbóta.

Að loknu námskeiðinu eiga þátttakendur að þekkja;
  • hvað áfengis- og vímuefnafíkn er s.s. áfengi, ólögleg vímuefni og lyf
  • helstu einkenni fíknisjúkdóma
  • söfnun gagna og mikilvægi þess að skrá minnisatriði
  • hvenær á að íhlutast í mál starfsmanns og hver á að gera það
  • verkferla varðandi íhlutun
  • hvað meðvirkni er og hvers vegna samstarfsfólk verður meðvirkt
  • leiðir til þess að setja erfið mál í farveg á faglegan hátt
  • áhrif neyslu á samstarfsmenn og umhverfi
  • viðtalstækni
Sjá nánar og skráning á www.endurmenntun.is
 
17. mars 2010
Alþjóðadagur félagsráðgjafa er í dag 17. mars!

Að því tilefni var dagurinn haldinn hátíðlegur í morgun með morgunverðarfundi kl. 8-10 á Grand hóteli.
 
Lesa meira...
14. mars 2010

Aðalfundarboð FFÁV

Aðalfundur Fagdeildar félagsráðgjafa um áfengis- og vímuefnamál verður haldinn mánudaginn 29. mars nk. kl. 15:00 í Borgartúni 6.

Skýrsla stjórnar, endurskoðun markmiða fagdeildarinnar, kosning tveggja stjórnarmanna til tveggja ára samkv. 4. grein laga og önnur mál löglega upp borin.

Stjórnin.

Með góðri kveðju, Jóna Margrét Ólafsdóttir, formaður.
 
12. febrúar 2010


Viljayfirlýsing Starfsafls fræðslusjóðs og Lifandi Ráðgjafar ehf. undirrituð.

Þann 10. febrúar sl. gerðu Starfsafl fræðslusjóður og Lifandi Ráðgjöf ehf. með sér sameiginlega viljayfirlýsingu að auka alhliða og sértæka færni almennra starfsmanna í atvinnulífi höfuðborgarsvæðinu, félagssvæði Starfsafls.

Starfsafl styrkir að jafnaði 75% af kosnaði við námskeið sem almennir starfsmenn fyrirtækja innan Starfsafls sækja. Fyrirtæki utan Samtaka atvinnulífsins fá lægra styrkhlutfall. Lifandi Ráðgjöf mun sjá um umsóknir til Starfsafls í þágu fyrirtækis og er hver umsókn metin af stjórn Starfsafls fyrir sig.

Lifandi Ráðgjöf og Starfsafl munu kappkosta við að kynna og bjóða almennum starfsmönnum innan stéttarfélaga Starfsafls, símenntunarlausnir sem hentar þörfum þeirra. Markmið Starfsafls er að hafa frumkvæði að þróunarverkefnum í starfsmenntun og þannig verði stuðlað að aukinni starfsmenntun fyrir ófaglærða starfsmenn í íslensku atvinnulífi. Starfsafl styrkir einnig meðal annars nýjungar og endurskoðun í námsefnisgerð og rekstur námskeiða.
 
11. febrúar 2010

Fagdeild félagsráðgjafa um áfengis- og vímuefnamál auglýsir:

Sjúkdómshugtakið alkóhólismi frá mörgum sjónarhornum
Morgunverðarfundur 4. mars Grand Hótel kl. 8:00 – 10:30


8:00- 8:30 Skráning og morgunverður

8:30- 8:40 Jóna Margrét Ólafsdóttir, formaður FFÁV setur málþingið

8:40- 9:00 Hugmyndafræðileg umgjörð vímuefnameðferða ???
Andrés Magnússon, geðlæknir á Fíknigeðdeild LSH

9:00- 9:20 Störf áfengis- og vímuefnaráðgjafa
Hjalti Björnsson, formaður Félags áfengis- og vímuefnaráðgjafa (FÁR)

9:20- 9:40 Skaðaminnkun í verki
dr. Helga Sif Friðjónsdóttir, lektor við
Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands

9:40-10:00 Leiðir til að takast á við félagslegar afleiðingar alkóhólisma
Þórarinn Þórsson, félagsráðgjafi, Diplóma: áfengis- og vímuefnamál

10:00-10:30 Samantekt og umræður

Fundarstjóri: Gunnlaug Thorlacius, félagsráðgjafi á Fíknigeðdeild LSH

Málþingið kostar kr. 1.850 sem greiðist við komu. Vinsamlegast skráið þátttöku á felagsradgjof@felagsradgjof.is fyrir 1. mars 2010
 
01. febrúar 2010
Styrkur, Vellíðan og Árangur!

Öðru námskeiði í Sjálfseflingu, samskiptum og meðvirkni, alls 16 kest. á vegum Lifandi Ráðgjafar og VIRK starfsendurhæfingarsjóðs lauk 29. janúar sl. Það voru sex stoltir nemendur sem luku námi almenn ánægja með efnistök námskeiðsins. Námskeiðið var haldið í Hamraborg 20a í Kóðavogi.

Með góðri kv. Jóna
 
26. janúar 2010
Starfsemin árið 2009.

SmelltuÍ byrjun árs 2010 er ekki úr vegi að líta yfir starf Lifandi Ráðgjafar árið 2009. Frá stofnun árið 2007 hefur starfsemin verið í örum vexti og þróun og hér verður fjallað um helstu verkefni á síðasta ári. Skólaárið 2008 til 2009 var unnið að forvarnarfræðslu og námsefnisgerð sem ber nafnið Teningurinn í samstarfi við forvarnefnd Hafnarfjarðar. Þessi forvarnarfræðsla var fyrir 9. bekk í nokkrum grunnskólum Hafnarfjarðar og í Hagaskóla. Samhliða fræðslunni fyrir krakkana var boðið upp á fræðslu fyrir foreldra og kennara. Í framhaldi af þróun þessarar forvarnarfræðslu sem miðar að fræðslu en ekki hræðslu áróðri, tók Lifandi Ráðgjöf þátt í frumkvöðlakeppni Innovit um Gulleggið. Lifandi Ráðgjöf var meðal tíu efstu keppenda með viðskiptaáætlun sína sem unnin var í samstarfi við Virtus bókhaldsfyrirtæki.

 
Lesa meira...
22. desember 2009


Gleðilega hátíð!
Lifandi Ráðgjöf óskar öllum landsmönnum nær og fjær, gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þökkum samstarfsaðilum fyrir gott samstarf á árinu sem er að líða.

Jólakveðja, Lifandi Ráðgjöf ehf.

 
16. desember 2009
Smelltu Smelltu

Námskeiðið, Sjálfsefling, samskipti og meðvirkni, alls 16 kest. sem haldið var á vegum Lifandi Ráðgjafar og VIRK starfsendurhæfingarsjóðs lauk í dag. Það voru sex stoltir nemendur sem luku námi og ríkti almenn ánægja á meðal þeirra með inntak námsþátta. Námskeiðið var haldið í Hamraborg 20a í Kóðavogi.
 
15. desember 2009
SmelltuMálstofa í hádeginu 14. desember sl. á vegum Lifandi Ráðgjafar og fagdeildar félagsráðgjafa um áfengis- og vímuefnamál sem bar yfirskriftina: Eiga allir gleðileg jól? Jól í skugga áfengis- og vímuefnaneyslu ástvina,var vel sótt. Fyrirspurnir og umræður voru athyglisverðar og ljóst er að umræðuefnið er þarft og snertir marga m.a. fagfólk sem starfa með einstaklinga í neyslu og fjölskyldur þeirra.
 
9. desember 2009
Eiga allir gleðileg jól?
Jól í skugga áfengis- og vímuefnaneyslu ástvina

Í huga flestra er jólin fjölskylduhátíð og eftirvæntingin mikil en fyrir marga aðstandendur áfengis- og fíkniefnaneytenda fylgja þeim jafnframt erfiðar tilfinningar eins og kvíði, sorg, söknuður, sektarkennd og reiði.

 
Lesa meira...
05. október 2009
Smelltu Örnámskeið Vímuefnaneysla og meðvirkni

Eitt skipti kl. 17:00-20:45 á miðvikudegi.

Fræðsla um fíknisjúkdóma og meðvirkni fyrir almenning og stjórnendur í fyrirtækjum og stofnunum.

Markmið námskeiðsins er að fræða einstaklinga um fíknisjúkdóma og færa þeim grunnþekkingu á helstu einkennum vímuefnaneyslu og meðvirkni.

Námsmarkmið:

Að námsmenn:
  1. Þekki sjúkdómshugtakið alkóhólismi.
  2. Þekki helstu einkenni fíknisjúkdóma.
  3. Þekki hvað er meðvirkni og hvers vegna verður fólk meðvirkt?
  4. Þekki helstu áhættuþætti þess að verða meðvirkur.
Innihald námskeiðsins:
  1. Hvað er áfengis- og vímuefnafíkn (áfengi, ólögleg vímuefni og lyf).
  2. Almenn einkenni vímuefnasjúkdóma.
  3. Sjáanleg hegðun vímuefnaneytanda á vinnustað sem hægt er að íhlutast í.
  4. Áhrif neyslu einstaklings á félagslegt umhverfi.
  5. Meðvirkni, hvað er það?
  6. Verða allir eins meðvirkir og hvernig á að komast út úr meðvirkni?
Fyrirkomulag: Fyrirlestrar, verkefnavinna (klípusögur) og umræður.
Lágmark þátttakenda eru tíu mans og hámark sextán.
Námskeiðsgjald er kr. 6.000.

Skráning fer fram á laera.is
 
05. október 2009
Smelltu

TÍMAMÓT

Námskeið fyrir aðstandendur alkóhólista.

Sex skipti kl. 17:00-20:00 á þriðjudögum og fimmtudögum, alls 24 kest.

Námskeiðslýsing og markmið:

  • Áhersla er lögð á að efla sjálfstraust sem skilar sér aftur í aukinni samskiptahæfni og betri lífsgæðum.
  • Hvað þarf til að ná árangri í leik og starfi.
  • Fjallað er um áfengissýki og vímuefnafíkn.
  • Fjallað er um fjölskyldusjúkdóminn, meðvirkni og hvernig meðvirkni breytir fjölskyldunni.
  • Fjallað er um samskiptakerfi í fjölskyldum.
  • Kynning á Al-Anon.
Fyrirkomulag: Texti, verkefnavinna og umræður.
Lágmark þátttakenda eru tíu mans og hámark sextán.
Námskeiðsgjald er kr. 14.000.
Innifalið í gjaldi eitt viðtal hjá sérfræðing.

Skráning fer fram á laera.is
 
7. apríl 2009
SmelltuNámskeiðið er fyrir ungt fólk á aldrinum sextán til tuttugu ára. Og lágmark þátttakenda tíu einstaklingar og hámark sextán. Námsskeiðsgjald er kr. 14.000

Námskeiðslýsing og markmið:
  • Fjallað er um áhugasvið, markmiðssetningu og hvað þarf til að ná árangri í leik og starfi.
  • Áhersla er lögð á að efla sjálfstraust sem skilar sér aftur í aukinni samskiptahæfni og betri lífsgæðum.
  • Fyrirkomulag: Texti, verkefnavinna og umræður.
  • Lágmark þátttakenda tíu einstaklingar og hámark sextán.
  • Námskeiðsgjald er kr. 14.000
Skráning fer fram á laera.is
 
23. mars 2009
Gulleggið 2009

Lifandi Ráðgjöf tók þátt í keppni á vegum Innovit sem haldin var nú í annað sinn um Gulleggið 2009. Alls voru sendar inn 122 hugmyndir og var forvarnarfræðsla LR, Teningurinn með þeim 10 efstu sem komust í úrslit.

 
Lesa meira...
19. mars 2009
Jóna Margrét Ólafsdóttir, félagsráðgjafi var ein af átta félagsráðgjöfum sem var tilnefndir sem Félagsráðgjafi ársins 2009. Þá tilnefningu fékk hún fyrir störf sín í forvarnarmálum í þágu barna og unglinga.

 
Lesa meira...
10. mars 2009
Foreldrafræðsla í Hagaskóla var haldin fimmtudaginn 26. febrúar sl. fyrir foreldra unglinga í 9. bekk en það eru þeir bekkir sem eru að fá forvarnarfræðslu Lifandi Ráðgjafar "Tvistinn". Fræðslunni var svo vel tekið að ákveðið var að endurtaka fræðslukvöldið og bjóða þá einnig foreldrum 8. og 10. bekkinga. Sú fræðsla var fimmtudagskvöldið 5. mars sl. og var líkt og áður vel sótt. Góðar fyrirspurnir og umræður urðu á fundinum og ljóst er að foreldrar barnanna í Hagaskóla vilja láta til sín taka um velferð barna sinna.

Smelltu Smelltu

 
23. janúar 2008


Neysla getur aukist í kjölfar erfiðs efnahagsástands og efling forvarna í grunn- og framhaldsskólum nauðsynleg!

„Vímuefnaneysla eykst í kreppuástandi. Það gerðist í kreppunni í Finnlandi og viðbúið er að slíkt gerist hér. Það verður til þess að enn fleiri detta út af vinnumarkaðnum og afbrotum fjölgar. Meðal annars þess vegna þarf að efla endurhæfingu vímuefnaneytenda,“ segir Herdís Hjörleifsdóttir, félagsráðgjafi hjá EKRON sem er með þjónustusamning við ríkið, Hafnarfjörð og Kópavog um atvinnutengda endurhæfingu fyrir vímuefnaneytendur. Reykjavíkurborg hefur hins vegar ákveðið að verja ekki lengur fé til starfseminnar, að sögn Herdísar.

 
Lesa meira...
18. janúar 2009
Ályktanir stofnfundar

"Samvinna fagaðila, skóla og foreldra er nauðsynleg" Ályktun stjórnar Fagdeildar félagsráðgjafa í áfengis og - vímuefnaráðgjöf

Mikilvægt er efla forvarnarfræðslu í skólum. Þar er börnum og unglingum kennt að takast á við vandamál og erfiðleika á heilbrigðan hátt. Rannsóknir sýna fram á að með öflugum forvörnum hefur dregið úr vímuefnaneyslu unglinga. Á tímum samdráttar í samfélaginu má ekki draga úr þessum þætti í námi barna og unglinga.

Samvinna fagaðila, skóla og foreldra er nauðsynleg til þess að koma í veg fyrir vímuefnaneyslu unglinga. Samfelld forvarnarfræðsla á öllum stigum skólakerfisins er eitt af því mikilvægasta sem stjórnvöld geta stutt við á erfiðleikatímum og mun til lengri tíma litið skila samfélaginu heilbrigðari þegnum með færri vandamál.

Jóna Margrét Ólafsdóttir
félagsráðgjafi og formaður Fagdeildar félagsráðgjafa í áfengis -og vímuefnaráðgjöf
Sími 860 0665

“Endurhæfing vímuefnaneytenda mikilvæg ”Ályktun stjórnar Fagdeildar félagsráðgjafa í áfengis og - vímuefnaráðgjöf Rannsóknir hafa sýnt að ein afleiðing atvinnuleysis er aukin neysla vímuefna og í kjölfarið aukast afbrot og líkamlegt og andlegt ofbeldi. Þessu er einnig öfugt farið og vímuefnasýki veldur því að viðkomandi einstaklingur fellur út af vinnumarkaði eða kemst aldrei inná vinnumarkaðinn.

 
Lesa meira...
16. janúar 2009
Stofnfundur Fagdeildar félagsráðgjafa um áfengis- og vímuefnamál var stofnuð 14. janúar sl. Fundurinn var vel sóttur og eftirfarandi félagar kosnir í stjórn fagdeildarinnar. Sjá nánar á www.felagsradgjof.is

Jóna Margrét Ólafsdóttir, formaður
Herdís Hjörleifsdóttir, stjórnarmaður til tveggja ára
Gunnlaug Thorlacius, stjórnarmaður til tveggja ára
Þórarinn Þórsson, stjórnarmaður til eins árs
Hanna Björg Héðinsdóttir, stjórnarmaður til eins árs

 
13. janúar 2009
Félagsráðgjafar munið stofnfund fagfélags félagsráðgjafa um áfengis og vímuefnamál.

Stofnfundur Fagfélags félagsráðgjafa um áfengis- og vímuefnamál verður haldinn að Borgartúni 6, 14. janúar 2009 kl. 15:00. Allir félagsráðgjafar sem starfa við áfengis- og vímuefnamál eru hvattir til að mæta og gerast stofnfélagar.
 
9. janúar 2009
Námskeið og fræðsla í boði hjá Lifandi Ráðgjöf.

Lifandi Ráðgjöf ehf. býður upp á námskeið, fræðslu og ráðgjöf varðandi áfengis- og fíkniefnamál fyrir einstaklinga, fjölskyldur, stofnanir og fyrirtæki.

Námskeið og ráðgjöf sem er í boði hjá Lifandi Ráðgjöf ehf.

 
Lesa meira...
7. janúar 2009
Stofnfundur Fagfélags félagsráðgjafa um áfengis og vímuefnamál.

Stofnfundur Fagfélags félagsráðgjafa um áfengis- og vímuefnamál verður haldinn að Borgartúni 6, 14. janúar 2009 kl. 15:00. Allir félagsráðgjafar sem starfa við áfengis- og vímuefnamál eru hvattir til að mæta og gerast stofnfélagar.

Stofnun Fagfélags félagsráðgjafa um áfengis- og vímuefnamál er mikilvægt skref stéttarinnar í þá átt að vinna að samræmingu þekkingar og vinnubragða þeirra félagsráðgjafa sem starfa við þennan málaflokk.

Þetta er stór og fyrirferðarmikill málaflokkur sem félagsráðgjafar starfa við á hverjum degi og því afar mikilvægt að þekking og upplýsingar séu aðgengilegar og að unnið sé markvisst að því að færa greininni það nýjasta og besta hverju sinni.

 
Lesa meira...
1. janúar 2009


Gleðilegt ár!

Lifandi Ráðgjöf óskar landsmönnum og viðskiptavinum sínum gleðilegs árs og þakkar fyrir samstarfið á árinu sem var að líða.

 
22. desember 2008
JÓLAKVEÐJA

Lifandi Ráðgjöf óskar viðskiptavinum sínum og landsmönnum öllum nær og fjær gleðilegra jóla.



Hátíðarnar og fjölskyldulífið, saga úr núinu.

„Ó, ég hlakka svo til um jólin“ heyrði ég litla ljóshærða stúlku hrópa upp yfir sig með eftirvæntingu í rómnum við tvær aðrar dökkhærðar stúlkur sem hún var að tala við önnur þeirra með fallega bleika húfu. Ég var á gangi fram hjá barnaskólanum í hverfinu mínu öslaði snjóinn upp fyrir kálfa og horfði vandlega niður fyrir mig svo myndi ekki renna til í hálkunni undir snjónum. En við að heyra þessi eftirvæntingar orð hlátur og skríkjur út undan mér leit ég ósjálfrátt upp stoppaði og horfði á stúlkurnar sem eru líklega um tíu ára aldur. Stúlkan sem í gleði sinni talaði um jólin og önnur hinna töluðu ákaft um hversu spennandi allt þetta jólastand er. Allt fas þeirra lýsti þeirri barnslegu gleði og áhyggjuleysi sem öll börn og unglingar eiga rétt á að upplifa. Þriðja stúlkan dró sig í hlé tók ekki undir gleði og áhyggjulausa tal stallsystra sinna og gerði sig líklega að labba í burt með því að setja á sig skólatöskuna. Það var enga eftirvæntingu eða tilhlökkun að sjá í fasi þeirrar stúlku og ég velti því fyrir mér hvers vegna? Ég stóð um stund í snjónum og velti því fyrir mér hvers vegna? En vinkonur hennar svöruðu þessari spurningu fyrir mig án þess að ég hafi ætlað mér að liggja á hleri þegar stúlkan er komin í nokkra fjarlægð frá þeim. „Hvað er eiginlega að? Hún getur aldrei talað um eitthvað skemmtilegt, t.d. sagt okkur hvað hana langar í jólagjöf“ segir dökkhærða stúlkan með bleiku húfuna. Þá svara sú ljóshærða sem af orðum hennar þekkti þá sem farin var betur en hin. „Þetta er alltaf svona hjá henni, mamma hennar er veik og liggur alltaf í rúminu og pabbi hennar drekkur oft út af því og er reiður, maður má ekki koma heim til hennar. Hún og litli bróðir hennar fá bara fínar jólagjafir frá ömmu sinni sem býr á Akureyri, þau eru nefnilega líka svo fátæk“.

 
Lesa meira...
24. nóvember 2008
Forvarnarstarf LR.

Mikil aukning hefur verið í forvarnarverkefnum hjá okkur í haust. Skólarnir hver af öðrum á stór-Reykjavíkursvæðinu hafa ákveðið að taka forvarnarverkefni LR inn í skólastarfið. Nú síðast voru það Norðlingaskóli og Hagaskóli sem ákváðu að taka inn forvarnarfræðslu fyrir 8. og 9. bekki. Sjá frétt á heimasíðu Hagaskóla: http://www.hagaskoli.is/um-hagaskola/frettir/nr/415/

 
Lesa meira...
3. október 2008
Markaðsátak á starfsemi Lifandi Ráðgjafar ehf. gengur vel og mikil eftirspurn er eftir kynningum. Greinilegt er að áhugi og/eða vöntun á nýjum áherslum í ráðgjöf og fræðslu um áfengis- og vímuefnamál er í samfélaginu. Í meðfylgjandi skjali eru listuð upp helstu verkefni og áherslur í því starfi sem unnið er að.

Smelltu

 
22. september 2008
SÁÁ stendur fyrir málþingi um forvarnir dagana 30. sept. til 2. okt. Málþingið er haldið í húsnæði SÁÁ, Von Efstaleiti og aðgangur ókeypis. Meðal fyrirlesara eru fulltrúar heilbrigðisstétta, lögreglan, foreldrar og stjórnmálamenn.

 
Lesa meira...
18. september 2008
Lifandi Ráðgjöf er að styrkja stöðu sína í forvörnum með vaxandi verkefnum um fræðslu og ráðgjöf um áfengis- og vímuefnamál. Framundan eru kynningar á starfseminni, send verða m.a. út bréf til forvarnarnefnda, grunn- og framhaldsskóla.

 
Lesa meira...
22. júlí 2008
Lifandi Ráðgjöf hefur gert samning við Ekron um að vera með og þróa námskeið fyrir óvirka alkóhólista í endurhæfingu til þess að komast aftur út í leik og starf. Ekron rekur starfs- og endurhæfingarúrræði fyrir einstaklinga sem hættir eru í vímuefnaneyslu, öryrkja og þá sem ekki eru á vinnumarkaði og hafa ekki gott aðgengi að atvinnu.
Innihald námskeiðsins miðar að sjálfseflingu, aðstoð við söfnun gagna, gerð ferilskrár og stuðningur við að fara atvinnuviðtal. Lengd námskeiðsins er alls 18. kest. Nú hefur eitt námskeið verið kennt og umsögn þátttakenda jákvæð, almennt var fólk að nýta sér alla efnisþætti og nú þegar er annað námskeið farið af stað.
 
5. júní 2008
Sumarið er komið og skólaárinu að ljúka. Í síðustu heimsókn með forvarnarfræðslu í 9-GG í Setbergsskóla ríkti spenna og gleði yfir því að vera að komast í sumarfrí. Krakkarnir voru alment ánægð með fræðsluna en höfðu þó orð á því að efnið hefði mátt vera meira myndrænt, bætt verður úr því fyrir næsta ár.

 
Lesa meira...
25. mars 2008
Árleg ráðstefna félags áfengis og vímuefnaráðgjafa verður haldin í Skógum undir Eyjafjöllum, 11-13 apríl.

Undirbúningur er hafinn og eru aðstandendur ráðstefnunnar að leita að fyrirlesurum meðal fræðimanna í faginu. Flutt verða erindi um það helsta sem er á döfinni í áfengis- og vímuefnaráðgjöf og tekin verða til umræðu grunnhugtök í greininni. Á ráðstefnunni verður lögð áhersla starf áfengisráðgjafans, hver er sérstaða hans og hverju breytir löggildingin. En áfengis- og vímuefnaráðgjafar fengu löggildingu á starfsheiti sitt í nóvember 2006. Ráðstefnan er eina sérhæfða ráðstefnan sem haldin er árlega hér á landi sérstaklega með þarfir áfengis og vímuefnráðgjafa í huga.

Hægt er að skrá sig á far@far.is og nánari upplýsingar um ráðstefnuna er að finna á heimasíðu félagsins www.far.is.
Aðgangseyrir er kr. 18.000,- en kr. 8.000,- fyrir félaga í FÁR.
 
10. mars 2008
Nú er heimsókn númer tvö af þremur í forvarnarfræðslu 9. bekkjar í Setbergsskóla lokið. Setbergsskóli hefur tekið þátt í tilraunarverkefninu Teningurinn, forvarnarfræðslu með Lifandi ráðgjöf skólaárið 2007 - 2008.

 
Lesa meira...
30. janúar 2008
Rannsóknasetur í barna- og fjölskylduvernd (RBF) og félagsráðgjafarskor Háskóla Íslands í samvinnu við Velferðasvið Reykjavíkurborgar standa að málstofu þriðjudaginn 11. mars kl. 12-13 í Odda stofu 101. Fyrirlesari að þessu sinni verður Hjördís Árnadóttir félagsmálastjóri í Reykjanesbæ og fjallar um forvarnastarf í Reykjanesbæ.

 
28. janúar 2008
Mikilvægt að koma til móts við þarfir fólks og bæta þjónustu Áfengis- og vímuefna sjúkdómur spyr ekki um stétt né stöðu frekar enn aðrir sjúkdómar og þau úrræði sem í boði eru varðandi sjúkdóminn eru mörg og mismunandi. Ljóst er að eitthvað sem hentar einum einstakling eða fjölskyldu þarf ekki að henta öðrum. Þetta á einnig við um tímasetningar, t.d. eru hefðbundnir viðtalstímar hjá fagaðilum á milli kl. 9:00 til 17:00. Þessi tími kann að vera þægilegur fyrir meðferðaraðilana en óþægilegur fyrir skjólstæðinginn, að baki geta legið ýmsar ástæður.

 
Lesa meira...
2.janúar 2008
Lifandi Ráðgjöf óskar samstarfsaðilum gleðilegs árs með þökk fyrir samstarfið á liðnu ári.

 
20. nóv. 2007


Forvarnarfræðsla Lifandi Ráðgjafar hefur hlotið nafnið Teningurinn og vísar til þess að hver bekkjarárgangur í grunnskólunum og framhaldsskólunum sem er í fræðslunni hefur sína tölu á teningnum. Ásinn er 8. bekkur, Tvisturinn er 9. bekkur og Þristurinn er 10. bekkur grunnskóla. Fjarkinn og Fimmann er námsefni í forvarnarfræðslu 1. og 2. árs í framhaldsskólum.

 
Lesa meira...
7. nóv. 2007
Forvarnarnefnd Hafnarfjarðar hefur gert samning við Lifandi Ráðgjöf um tilraunarverkefni í undirstöðu forvarnarfræðslu fyrir grunnskóla.
Fyrsti hópurinn er 9. bekkur í Setbergsskóla og mun þessi fræðsla hefjast nú í nóvember.
Verkefnið hefur fengið nafnið ,,Tvisturinn” og fer fram á eftirfarandi hátt: Farið er með fræðslu í bekki þrisvar á skólaárinu í nóvember, febrúar og maí í þrjár til fjórar kest. í senn.
Fræðslan skiptist í þrennt: Samskipti og sjálfsefling, vímuefni og afleiðingar neyslu og í síðustu heimsókninni sem er í maí, verður fjallað um það sem framundan er þ.e. sumarið, væntingar til þess og breytingar.
Lagt verður fyrir námsmat og nemendum veitt viðurkenningarskjöl fyrir að hafa tekið þátt í verkefninu.
Megin áhersla í undirstöðu forvörnum fyrir unglinga er að efla sjálfstraust, sjálfsvirðingu og sjálfsmynd þeirra sem skilar sér aftur í aukinni samskiptahæfni og betri lífsgæðum.

 
17 okt 2007
10. október sl. var Lifandi Ráðgjöf með fræðslu um áfengissýki og íhlutun fyrir stjórnendur Hrafnistu í Reykjavík og Hafnarfirði. Mikil þörf er fyrir upplýsingar um fíknisjúkdóma í umönnunarstörfum þar sem það snertir bæði starfsfólk og skjólstæðinga. Aukning hefur verið á að vinnustaðir óski eftir slíkri fræðslu og upplýsingum um hvernig bregðast skuli við ef starfsmaður er í neyslu. Hrafnistuheimiln eru mjög virk í að stuðla að endur- og símenntun sinna starfsmanna og var þessi fræðsla hluti af því.

SmelltuSmelltu
Hressir félagsráðgjafar
á Hrafnistu
þær Hrönn Ljótsdóttir
og Soffía Egilsdóttir
Smelltu


 
Lesa meira...
Ný heimasíða
Ný heimasíða
Heimasíða ráðgjafaþjónustunnar Lifandi Ráðgjöf er komin í loftið. Undirbúningur hefur staðið yfir um þó nokkurt skeið og árangur þeirrar vinnu nú komin í ljós. Viðbrögðin við þeirri þjónustu sem Lifandi Ráðgjöf veitir hafa verið sterk. Þörfin fyrir fræðslu, ráðgjöf og upplýsingar um hvenær rétt er að hlutast til í málum einstaklinga, fjölskyldna og á vinnustöðum vegna vímuefnamála brennur á fólki í samfélaginu.

 
Lesa meira...
 
Um okkur Námskeið fræðsla Spurt & Svarað
| Lifandi Ráðgjöf ehf | Skipholti 50c | 105 Reykjavík | sími: 860 0665 | lifandiradgjof@lifandiradgjof.is | Netvistun - Heimasíðugerð, hugbúnaðarlausnir og hönnun